Hjá VORAR starfa hönnuðir með áratugareynslu sem hafa það eitt að markmiði að hanna efni sem fangar augað, kveikir áhuga og vekur athygli – jafnvel umhugsun. Verkefnin eru jafn margvísleg og þau eru mörg, en eiga þó sameiginlegt markmið: að skilaboðin komist til skila á smekklegan og árangursríkan hátt í samvinnu við viðskiptavininn.