Verkiðn - Mín framtíð 2023

Mín framtíð er stórviðburður sem er haldinn annað hvert ár til þess að stuðla að eflingu iðnmenntunar á Íslandi og felur í sér kynningu á iðn- og verkgreinum ásamt því að Íslandsmót fer fram í greinunum.

Við sáum um allt kynningarstarf sem fól meðal annars í sér að hanna og framleiða umhverfisauglýsingar og merkja Laugardalshöll í bak og fyrir. Skemmtilegt og krefjandi verkefni sem er gaman og gefandi að koma að.