Appolo línan frá Góu hefur verið fastur liður í nammiskálum landsmanna í fjöldamörg ár. Það var því sannur heiður að fá tækifæri til að gefa þessari rótgrónu línu smá andlitslyftingu.
Rúllurnar sem við þekkjum öll eru þar á meðal. Litlar umbúðir með mikla sögu sem við lögðum upp með að varðveita við uppfærslu hönnunarinnar. Okkur finnst hafa tekist sérlega vel til!