Þau voru heldur en ekki stór tíðindin sem bárust úr sælgætisheiminum á þá leið að Nói Síríus yrði þriðji framleiðandinn á heimsvísu sem fengi að framleiða það sem kallað hefur verið fjórða súkkulaðið, 100% náttúrulegt bleikt súkkulaði úr kakóbaun sem svissneski súkkulaðiframleiðandinn Barry Callebaut varði þrettán árum í að þróa. Súkkulaðiunnendur um allan heim biðu skiljanlega með öndina í hálsinum af eftirvæntingu eftir því að tilkynnt væri um þetta nýja súkkulaði. Að sjálfsögðu hönnuðum við um hæl viðeigandi umbúðir sem voru lýsandi fyrir vöruna; bleikar, glaðlegar og rómantískar.